Almennar skilareglur hjá Tvö Líf

Tvö líf hvetur viðskiptavini sína til að kynna sér þau réttindi sem þeir hafa sem viðskiptavinir fyrirtækisins. Tvö Líf kappkostar að rækta skyldur sína við viðskiptavini af kostgæfni á öllum stundum.

Reglur um vöruskil
Hægt er að skila öllum vörum nema nærbuxum, sundbuxum, sokkabuxum þar sem innsigli er rofið, sokkum, snyrtivörum og útsöluvörum.

Skilafrestur eru tvær vikur. Kassakvittun eða skiptimiði er skilyrði fyrir vöruskilum og fær viðskiptavinur inneignarnótu. Hafi viðskiptavinur ekki kassakvittun eða gjafamiða, en viðkomandi vara er greinilega keypt í Tvö Líf og er enn til sölu í versluninni, getur viðskiptavinur fengið inneignarnótu. Ef vara er versluð í vefverslun gilda sömu reglur nema að sendingakostnaður er alltaf á kostnað kaupanda nema að sé um að ræða galla í vöru. Ekki er hægt að skila útsöluvörum!

Gallaðar vörur
Hægt er að skila vöru sé um vörugalla að ræða. Kassakvittun er skilyrði fyrir vöruskilum. Hafi viðskiptavinur ekki kassakvittun, en viðkomandi vara er greinilega keypt í Tvö Líf og er enn til sölu í versluninni, getur viðskiptavinur fengið inneignarnótu.

  • Ávallt er boðin viðgerð á gallaðri vöru, ef því verður komið við.

  • Ef ekki fæst nákvæmlega eins vara ógölluð getur viðskiptavinur valið um að fá aðra vöru eða að fá vöruna endurgreidda.

Upphæð inneignarnótu eða endurgreiðslu
Upphæð inneignarnótu eða endurgreiðslu skal vera það verð sem kemur fram á kassakvittun. Liggi kassakvittun ekki fyrir skal upphæð inneignarnótu eða endurgreiðslu vera það verð sem gildir í versluninni þann dag sem skil eiga sér stað.

Inneignanóta gildir í 2 ár frá útgáfudegi.