Bókin Meðganga og fæðing með hómópatíu er ómissandi fyrir allar þær konur sem vilja taka meiri ábyrgð á eigin heilsu á meðgöngunni, á mildan og áhrifaríkan hátt.
Í þessari sjálfshjálparbók er tekið á mörgum af þeim kvillum sem konur geta þurft að takast á við á meðgöngu, í fæðingarferlinu sjálfu og fyrstu dagana eftir að hún hefur eignast barn. Má til dæmis nefna morgunógleði, bjúg, meltingarójafnvægi, sinadrætti, bakverki, gyllinæð, fæðingarþunglyndi, brjóstabólgu, þvagteppu, ásamt fjölda annarra kvilla sem teknir eru fyrir.
Það er val hverrar konu hvernig hún vill takast á við líðan sína á meðgöngunni. Hómópatía er frábær kostur sem vert er að kynna sér.
Allar frekari upplýsingar er að finna á www.htveir.is
Hómópatískar remedíur fást í öllum helstu heilsuvöruverslunum landsins.

