Skítugar snuddur eru úr sögunni, með Keep-it-Kleen snuddunum frá Razbaby.
Bylting í snudduhönnun, snuddan lokast um leið og hún dettur og helst því snuddutúttan hrein, einnig er snuddan mjög hentug í veskið og vasann þar sem lokið er fast á og auðvelt að gæta fyllsta hreinlætis.
unin er ótrúlega sniðug og þú þarft ekki að velta fyrir þér hvort hún virkar. Allar RazBaby Keep-It-Kleen snuddurnar eru með innbyggðri hlíf. Hlífin er viðkvæm fyrir fyrir hreyfingu og lokast við minnsta fall.
Ef þú ert að velta fyrir þér hvort hönnunin og snuðið gæti valdið barninu óþægindum, þá skaltu sleppa því. Því hlífin er mjúk og aðlagast auðveldlega að andliti barnsins, þú þarf ekki að hafa áhyggjur af því að hlífin lokist eða klemmi barnið þitt því þó það sé næmt þá lokast það ekki þegar barnið sýgur þar sem það bregst ekki við sog þrýstingi. Fyrir hámarksþægindi eru loftgöt á snuðinu sem lofta um viðkvæma húð barnsins.
Razbaby vörurnar eru unnar með öryggi barnsins í huga þær hafa hlotið leyfi frá U.S. Consumer Product Safety og European Standards EN 1400. Hver snudda er framleidd án allra eiturefna eða annarra heilsuspillandi efna, snuddurnar eru líka BPA fríar. Snuddurnar henta frá fæðingu og til þriggja ára, allar snuddurnar eru frá 0-36 mánaða svo óþarfi er að versla sérstakar snuddur fyrir hvítvoðunginn.
Snuddurnar eru með glaðlegri og fallegri hönnun, margir litir og myndir í boði.
Razbaby snuddurnar
-
Eru þær einu á markaðinum sem lokast þegar þær detta
-
Snuðtúttan helst hrein
-
Alltaf hægt að loka snuddunni svo þú getur geymt hana í veskinu eða í vasanum án þess að þurfa að hafa áhyggjur af hreinlæti.
-
Þar sem lokið er alltaf á þarf ekki að hafa áhyggjur af því að tína fleiri snudduboxum.

