Reliefband Classic B-vara

VINSAMLEGA ATHUGIÐ:

Ekki er hægt að skila/skipta B-vörum, nema um sé að ræða framleiðslugalla. 

14 daga reynslutími á nýjum Reliefband á því ekki við um B-vörur.

 

Á meðgöngu glíma margar verðandi mæður við þráláta ógleði. Reliefband er klínískt viðurkennt til að vinna gegn meðgönguógleði og annarri ógleði. Reliefband er laust við lyfjaáhrif og aukaverkanir.

 

Tækið vinnur gegn ógleði og uppköstum með mildri rafskautaörvun miðtaugar í úlnlið. Reliefband er stafrænt (digital) lækningatæki sem fest er á armband og borið á úlnliðnum eins og úr. Tækið er búið örvandi elektróðu (rafskauti) sem snýr að úlnliðnum. Með mildri rafskautaörvun miðtaugar í úlnlið (P6) rýfur tækið ógleðiskilaboð frá heilanum til magans. Reliefband vinnur með náttúrulegum hætti og hefur ekki aukaverkanir á borð við svefndrunga eða þurrk í munni sem fylgir ógleðistillandi lyfjum.

 

Reliefband er viðurkennt af FDA (bandarísku lyfjastofnuninni) og skráð lækningatæki í flokki II hjá Lyfjastofnun Íslands.

Reliefband fæst í tveimur útgáfum, Classic og Premier. Virkni tækjanna er sú sama, en ýmsir aðrir eiginleikar skilja á milli þeirra.

 

Reliefband Classic – tæknilegir eiginleikar

Fimm styrkstillingar eftir því hversu mikla örvun þarf til að vinna bug á ógleði og uppköstum.

Gengur fyrir útskiptanlegum algengum hnapparafhlöðum (CR2025, fáanlegar víða) sem duga allt að 150 tíma í notkun.

Reliefband Classic situr neðan á úlnliðnum. Bera þarf leiðnigel (conductivity gel – sem fylgir) á húðina til að tryggja rétta virkni.

Snertifletirnir á Reliefband Classic innihalda snefil af málminum nikkel, sem getur valdið útbrotum hjá þeim sem hafa ofnæmi fyrir nikkel. Þetta er þekkt hjá þeim sem fá útbrot af sumum gerðum skargripa eða úra, en hefur ekki áhrif á aðra. Snertifletirnir á Reliefband Premier eru hins vegar úr svokölluðu „medical grade“ stáli 316L og innihalda ekkert nikkel.

 

Vefsíða Reliefband á Íslandi: reliefband.is

16.493 kr.

Á lager

Add to wishlist
Vörunúmer: RB-classic-B-vara Flokkar: , , ,