ÁLFHEIMAR 74, GLÆSIBÆR | S. 517-8500 | MÁN-FÖS: 11-18 LAU: 12-15

Í apríl 2005 opnuðu Ásdís Birta og Sigga Lára glæsilega verslun,Tvö líf, fyrir verðandi og nýbakaða foreldra.
Verslunin var staðsett í Holtasmára (Hjartarverndarhúsinu) í tíu ár, en þann 1. júní 2015 flutti verslunin í glæsilegt húsnæði í Glæsibæ að Álfheimum 74.

Í dag 16 árum seinna státar verslunin af mesta úrvali landsins af meðgöngu- og brjóstagjafafatnaði.
Tvö líf leggur áherslu á flottan tískufatnað fyrir allar verðandi og nýbakaðar mæður, ásamt öllu því helsta sem nauðsynlegt er að eiga til að auðvelda sér lífið á meðgöngunni og við brjóstagjöfina.

Við leggjum okkur fram við að veita persónulega, faglega og hlýja þjónustu.


Tvö Líf er til húsa í Glæsibænum en einnig má finna allar vörur í netversluninni.